Tenglar

16. september 2011 |

Réttað á Kinnarstöðum í Reykhólasveit

Ærin Bylgja með sitt laskaða eyra.
Ærin Bylgja með sitt laskaða eyra.

Fjárleitir og réttir standa nú sem hæst um land allt. Réttað verður í Kinnarstaðarétt í Reykhólasveit á sunnudaginn. Annað kvöld verður fénu komið í nátthaga en réttirnar sjálfar hefjast kl. 11 á sunnudag. Réttarstjóri er Jónas Samúelsson á Reykhólum. Sitthvað er í boði í héraðinu vegna réttarhelgarinnar.

 

Bæði í dag og á morgun er opið lengur í Grettislaug á Reykhólum en venjulega eða fram til klukkan tíu, kjötsúpan sígilda verður á borðum í Bjarkalundi á laugardag og sunnudag og Handverksfélagið Assa verður með markaðinn sinn í Nesi opinn á laugardag og sunnudag þar sem kaffi og vöfflur standa til boða.

 

Sjá einnig:

22.09.2009  Þarna er Bylgja sem drapst í fyrra

 

Fjallskilaseðill Reykhólahrepps 2011

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31