Tenglar

31. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is

Reykhóladagar: Bestu skreytingarnar á Grund

Myndirnar tala sínu máli.
Myndirnar tala sínu máli.
1 af 14

Heimilisfólkið á Grund fékk viðurkenningu dómnefndar fyrir bestu skreytingarnar á Reykhóladögum 2013. Verðlaunin eru ferð fyrir tvo til annað hvort Kaupmannahafnar eða Lundúna með WOW-air. Hér fylgja nokkrar myndir af hinum margvíslegu skreytingum á Grund. Á mynd nr. 9 eru tveir brosandi félagar en á næstu mynd þar á eftir má sjá eftirstöðvar þokunnar sem var aðfaranótt föstudagsins en létti síðan fljótlega að mestu þegar leið á daginn. Veðrið lék við heimafólk og gesti á Reykhóladögum 2013.

 

Verið er að vinna fjölda mynda frá hátíðarhöldunum og má búast við þeim inn í ljósmyndasafnið hér á vefnum á morgun þegar því verki er lokið. Jafnframt er fólk hvatt til að senda skemmtilegar svipmyndir frá hátíðinni í netfangið vefstjori@reykholar.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31