26. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Reykhóladagar: Hverjir bjóða heim í súpu?
Hefðbundin heimboð í súpu á Reykhóladögum eru í dag og á morgun, föstudag og laugardag. Allir eru velkomnir að ganga á milli og smakka á ýmsu ljúfmeti sem er í boði á milli kl. 11.30 og 13.30 báða dagana. Þeir sem bjóða heim eru þessir:
Föstudagur
- Báta- og hlunnindasýningin
- Heimilisfólk á Grund
- Björk og Elísabet á Hellisbraut 48
- Hrefna Jónsdóttir á Hellisbraut 24
Laugardagur
- Báta- og hlunnindasýningin
- Herdís Erna á Reykjabraut 1
- Hallfríður á Hellisbraut 52
- Anna Greta, skólastjórasúpa á Skólabraut
- Álftaland