4. júlí 2020 | Sveinn Ragnarsson
Reykhóladagarnir á sínum stað í sumar
Reykhóladagar verða á sínum stað, helgina fyrir verslunarmannahelgi.
Mig langar að óska eftir að þeir sem langar að sjá um viðburði af einhverju tagi, eða koma viðburðum inn í dagskrá setji sig í samband við mig fyrir 10. Júlí.
Einnig ef einhverja langar að bjóða heim í súpu þá má líka setja sig í samband við mig í netfangið johanna@reykholar.is eða s. 698 2559.
Bestu kveðjur
Jóhanna Ösp