Tenglar

23. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is

Reykhóladagarnir að bresta á - skráið ykkur!

Svipmynd frá borðhaldinu á Reykhóladögum í fyrra.
Svipmynd frá borðhaldinu á Reykhóladögum í fyrra.

Þau Ingi Þór og Rósamunda, sem annast skipulagningu og umsjá Reykhóladaganna að þessu sinni, vilja koma á framfæri ánægju sinni með undirtektir heimafólks, ekki síst hvað snertir þátttöku í hinum og þessum viðburðum og leikjum sem eru á dagskránni. Þau hvetja til þess að enn fleiri skrái sig til þátttöku því að lengi má bæta við. Núna stendur jafnframt yfir forsala á skemmtunina á laugardagskvöld.

 

Panta má miða á skemmtunina miða með því að senda póst á reykholar2013@gmail.com eða hringja í síma 691 6960. Tekið skal fram, að miðar pantaðir þannig fást á forsöluverði.

 

Veðurhorfurnar eru eins og best verður á kosið.

 

► Sjá hér dagskrá Reykhóladaganna og allt sem viðkemur skráningum á viðburði

 

Endilega deilið sem víðast!

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31