Tenglar

25. júlí 2016 |

Reykhólahreppur: Góður fjárhagur og batnar enn

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps var fyrri umræða um ársreikning hreppsins fyrir síðasta ár. Lagðir voru fram endurskoðaðir ársreikningar hreppsins og stofnana hans og hafa þeir verið birtir hér á vefnum (Stjórnsýsla í valmyndinni vinstra megin á síðunni). Hagur sveitarfélagsins er góður og hefur enn batnað milli ára.

 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2015 námu 480,2 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 441,8 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu 337,9 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 294 millj.

 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt rekstrarreikningi A- og B-hluta var jákvæð um 33,5 millj. kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 12,8 millj. kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 14,8 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 5,5 millj. kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

 

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 387,5 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi en eigið fé A-hluta nam 328,7 millj. kr.

 

Sjá nánar ársreikningana sjálfa (fyrir Reykhólahrepp í heild, Dvalar- og hjúkrunarheimilið Barmahlíð, hafnarsjóð Reykhólahrepps, leiguíbúðir Reykhólahrepps og Reykhólaveitur). Þar er einnig að finna reikninga undanfarinna ára til samanburðar.

 

Fundargerðir sveitarstjórnar Reykhólahrepps og einstakra nefnda er að finna í reitnum Fundargerðir neðst til vinstri á síðunni. Þar eru nú einnig komnar inn fundargerð málþings í Flatey 27. júní um málefni eyjarinnar, fundargerð dreifbýlisnefndar sama dag á sama stað og fundargerð fjallskilanefndar 19. júlí.

 

Fundur í Saltkjallaranum á Hótel Flatey

    

Athugasemdir

Einar Örn Thorlacius fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahrepps, mnudagur 25 jl kl: 14:08

Traustur rekstur, það er gott. Til hamingju með það!

Oft er það svo að fjárhagur fjölmennari sveitarfélaga er lakari, einhverra hluta vegna.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31