Tenglar

9. október 2015 |

Reykhólakirkja í bleiku ljósi í október

Reykhólakirkja í bleiku skini. Á innfelldu myndinni er Bleika slaufan 2015.
Reykhólakirkja í bleiku skini. Á innfelldu myndinni er Bleika slaufan 2015.

Núna er Reykhólakirkja bleiklýst eins og undanfarin ár í tilefni af Bleikum október, sem að þessu sinni er helgaður baráttunni gegn ristilkrabbameini. Til fjáröflunar selur Krabbameinsfélag Íslands skartgripinn Bleiku slaufuna, sem er með nýrri hönnun á hverju ári. Erling Jóhannesson hönnuður og silfursmiður hannaði slaufuna í ár.

 

Á vefnum Bleiku slaufunni, sem er hluti af vef Krabbameinsfélags Íslands, má fá nánari upplýsingar um Bleiku slaufuna 2015, sölustaði og vefverslun. Verðið er 2.000 krónur.

 

Þar segir einnig meðal annars:

 

Ristilkrabbamein er önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameina á Vesturlöndum. Við hjá Krabbameinsfélagi Íslands viljum með aðstoð ykkar fækka tilfellunum, en þessi tegund er eitt fárra krabbameina sem hægt er að koma í veg fyrir eða finna á byrjunarstigum með skimun.

 

Skimun eftir ristilkrabbameini getur bjargað okkur og fólkinu okkar og er því mikill sigur unninn ef vel tekst til í fjáröflunar- og árveknisátaki Bleiku slaufunnar í ár, en markmiðið með átakinu er að skipuleg leit að ristilkrabbameini verði að veruleika. Því fyrr sem mein greinist, því meiri líkur eru á bata, en það er líklega eitt dásamlegasta orð sem krabbameinsgreindir og þeirra aðstandendur geta heyrt.

 

Krabbameinsfélag Breiðfirðinga er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands.

 

Athugasemdir

Hólabúð, fstudagur 09 oktber kl: 13:28

Þess má geta að bleikaslaufan fæst aðsjálfsögðu í Hólabúð :)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31