Tenglar

4. maí 2012 |

Reykhólamaður sigraði á Strandamannamóti

Efstu pörin: Ingimundur Pálsson, Már Ólafsson, Dalli, Björn Pálsson, Vignir Pálsson og Guðbrandur Björnsson.
Efstu pörin: Ingimundur Pálsson, Már Ólafsson, Dalli, Björn Pálsson, Vignir Pálsson og Guðbrandur Björnsson.
1 af 8

Guðjón D. Gunnarsson (Dalli) á Reykhólum og Björn Pálsson í Þorpum við Steingrímsfjörð sigruðu á árlegu héraðsmóti Strandamanna í brids, sem haldið var í félagsheimilinu í Árnesi í Trékyllisvík í vikunni. Spilaður var tvímenningur og tóku tuttugu manns eða tíu pör þátt í mótinu. Tveir Reykhólamenn gerðu ferð sína til keppni, þeir Dalli og Eyvindur Magnússon, sem hafa farið ófáar ferðirnar á Strandir til að spila. „Við Eyvi erum nú eiginlega Strandamenn,“ segir Dalli.

 

Dalli og Björn hafa lengi verið makkerar í bridsinu. Í öðru sæti urðu Ingimundur Pálsson og Már Ólafsson og í þriðja sæti Vignir Pálsson og Guðbrandur Björnsson. Þess má geta að þeir Björn, Ingimundur og Vignir eru bræður.

 

Þórarinn Ólafsson í Stekkjarlundi í Reykhólasveit slóst í förina með Dalla og Eyva. Hann fór þó ekki til að spila heldur notaði hann tímann til myndatöku í Trékyllisvík og tók jafnframt myndirnar af bridsmönnum sem hér fylgja.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31