21. ágúst 2012 |
Reykhólar: Kennsla í grunnskóladeild að hefjast
Skólahald í grunnskóladeild nýsameinaðs skóla á Reykhólum hefst í fyrramálið. Skólasetning verður klukkan hálfníu en síðan hefst kennsla með venjubundnum hætti. „Ég óska öllum nemendum Reykhólaskóla farsældar á skólaárinu og hlakka til að taka þátt í áframhaldandi góðu starfi skólans. Líka hlakka ég til samstarfs við foreldra barnanna í Reykhólaskóla,“ segir Anna Greta Ólafsdóttir, hinn nýi skólastjóri á Reykhólum.
Starfið í leikskóladeildinni er þegar hafið.
► 16.05.2012 Anna Greta verður skólastjóri á Reykhólum
► 09.03.2012 Skólarnir á Reykhólum sameinaðir í haust