Reykhólar: Ljósnet Símans ekki komið á dagskrá
Í frétt á mbl.is í dag, þar sem vitnað er í tilkynningu frá Símanum, segir að á þessu ári muni 53 nýir þéttbýlisstaðir á landinu fá Ljósnet Símans. Reykhólar eru ekki þar á meðal. Ljósnetið hefur í för með sér meiri hraða, öflugra net og bætta sjónvarpsþjónustu. „Þegar búið verður að uppfæra þessa staði [sjá upptalningu hér fyrir neðan] standa aðeins 1,4% landsmanna án fullrar sjónvarpsþjónustu hjá Símanum,“ segir í fréttinni. Þegar Reykhólavefurinn spurðist fyrir um það hjá Símanum hvenær þessara framfara megi vænta á Reykhólum og í Reykhólahreppi barst eftirfarandi svar:
- Eins og staðan er í dag eru það bara þeir staðir sem tilgreindir voru í fréttinni sem verða tengdir á þessu ári. Það fer þó eftir því hversu vel okkur gengur hvort við bætum fleiri stöðum við en það er eitthvað sem tíminn verður að leiða í ljós.
Mbl.is vitnar í eftirfarandi ummæli forstjóra Símans í tilkynningunni:
- Við vitum hve mikilvægt er fyrir sveitarfélög landsins að sitja ekki eftir á tækniöld, því fjarskipti skipa lykilsess í grósku samfélaga og farsæld fyrirtækja. Við gerum því okkar besta svo fjarskiptin stýri ekki byggðaþróuninni í landinu heldur skapi tækifæri fyrir landsmenn að hasla sér völl þar sem þeir vilja helst.
Staðirnir 53 sem ákveðið hefur verið að tengja Ljósnetinu eru skv. upptalningu í fréttinni:
Akranes, Keflavík, Njarðvík, Selfoss, Vestmannaeyjar, Hveragerði, Þorlákshöfn, Garður, Sandgerði, Eyrarbakki, Kjalarnes, Hvolsvöllur, Stokkseyri, Hella, Hafnir, Ísafjörður, Húsavík, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Dalvík, Blönduós, Ólafsfjörður, Hrafnagil, Egilsstaðir, Höfn, Neskaupstaður, Reyðarfjörður, Stykkishólmur, Ólafsvík, Eskifjörður, Bolungarvík, Seyðisfjörður, Grundarfjörður, Vopnafjörður, Fáskrúðsfjörður, Patreksfjörður, Hellissandur, Hvammstangi, Skagaströnd, Vík, Djúpavogur, Flúðir, Þórshöfn, Bakkafjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík, Búðardalur, Tálknafjörður, Suðureyri, Þingeyri, Flateyri, Bíldudalur og Hnífsdalur.
Guðjón D. Gunnarsson, mnudagur 28 janar kl: 21:57
Við vorum nógu góð til að leggja til land undir ljósleiðarann, eftir endilöngum hreppnum, á annað hundrað kílómetra, með tilheytandi raski og óþægindum.
En við erum ekki nógu merkileg til að fá tengingu. Fyrirlitlegt.