Tenglar

25. mars 2011 |

Reykhólar: Námskeið í breikdansi

Natasha Monay Royal frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru verður með námskeið í breikdansi (break) í Reykhólaskóla vikuna 28. mars til 1. apríl, sem Ungmennafélagið Afturelding gengst fyrir. Það er ætlað börnum sem verða sex ára á árinu og eldri. Gjaldið er kr. 4.500. Skráning hjá Guðrúnu í síma 865 5237 og Herdísi í síma 690 3825. Stjórn Aftureldingar vonast til að sem flestir nýti sér þetta tækifæri.

 

Tímar verða eins og hér segir:

 

          Mánudagur til fimmtudags (yngri krakkar) kl. 13.55-14.55.

          Föstudagur (yngri krakkar) kl. 12.30-13.30.

 

          Mánudagur til fimmtudags (eldri krakkar) kl. 15-16.

          Föstudagur (eldri krakkar) kl. 13.30-14.30.

 

          Föstudagur, sýning (allir) kl. 15.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31