20. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is
Reykhólar: Peter Weiss kemst ekki
Námskynning forstöðumanns Háskólaseturs Vestfjarða sem áformuð var á Reykhólum í dag (sjá næstu frétt hér á undan) frestast um óákveðinn tíma vegna veðurs og færðar. Þegar af henni getur orðið verður greint frá því hér á vef Reykhólahrepps. Auk þess eru allir áhugasamir eindregið hvattir til að hringja í Peter Weiss í síma 450 3040 (háskólasetrið) eða skrifstofu Reykhólahrepps (434 7880) og fá upplýsingar um þessi mál.
► Háskólasetur Vestfjarða: Námskynning á Reykhólum