Tenglar

3. desember 2008 |

Reykhólar: Þaraböð, leirböð og sjóböð til heilsubótar

Þang- og þaraflutningaskipið Karlsey við bryggju í Karlsey.
Þang- og þaraflutningaskipið Karlsey við bryggju í Karlsey.
1 af 2

Þaraböð eru lítið þekkt hérlendis þótt þau séu í boði víða annars staðar í heiminum. Nú styttist hins vegar í að fólk geti skellt sér í þarabað hér á landi. Hugmyndina hafa þær Sólrún Sverrisdóttir og Svanhildur Sigurðardóttir á Reykhólum þróað, en nóg er af þaranum þar í kring. Þær fóru að gera tilraunir á eigin skinni, í bókstaflegri merkingu, með því að setja þaramjöl frá Þörungaverksmiðjunni í hitaveituvatn í heitum potti. Útkoman var, eins og Sólrún orðar það, algjör sæla.

 

Sólrún segir að þarinn og þaramjölið virki vel á húðsjúkdóma en í því er mikið af vítamínum og steinefnum sem húðin á gott með að taka upp. Þær stöllur stefna að því að opna baðhús á Reykhólum sem fyrst, þar sem boðið verður upp á þaraböð og einnig sjóböð og leirböð. Frá þessu var greint á ruv.is.

 

Á mynd nr. 1 má sjá netpoka með þangi eða þara um borð í Karlsey, flutningabát Þörungaverksmiðjunnar, við bryggjuna í Karlsey, skammt frá verksmiðjunni. Í baksýn sér til þorpsins á Reykhólum. Mynd nr. 2 er tekin á sama stað með nokkrum aðdrætti (smellið á myndirnar til að stækka þær).

 

Athugasemdir

Jóhanna Fríða Dalkvist, fimmtudagur 04 desember kl: 14:48

Frábært að heyra, til hamingju með þetta :)

Sigríður Svavarsdóttir, fimmtudagur 04 desember kl: 23:44

Frábært framtak hjá ykkur.. Til hamingju Reykhólabúar..

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31