24. október 2008 |
Reykhólar í túlkun Gunnlaugs Blöndal
Meðal verka á listmunauppboði hjá Gallerí Fold fyrr í þessum mánuði var myndin Reykhólar eftir Gunnlaug Blöndal (1893-1962), stór vatnslitamynd (65x96) frá 1944. Af öðrum verkum á uppboðinu má nefna vatnslitamyndina Frá Breiðafirði eftir Barböru Árnason (1911-1975).
„Gunnlaugur Blöndal var hvorki natúralisti né raunsæismaður í list sinni. Hann beitti fyrst og fremst pensli sínum til að láta í ljós persónulega, ljóðræna tilfinningu, sem er einstök í íslenzkri málaralist og gerir myndir hans auðkennilegar frá öllum öðrum ..." (Kristján Karlsson 1963).