25. ágúst 2012 |
Reykhólaskóli: Karlkyns stuðningsfulltrúa vantar
Reykhólaskóli auglýsir eftir karlkyns stuðningsfulltrúa til að sinna börnum við leik- og grunnskóladeild skólans og eftir nánara samkomulagi. Einnig felst í starfinu sturtugæsla í karlaklefa skólans. Um er að ræða 100% starfshlutfall, tímabundið skólaárið 2012-2013.
Við Reykhólaskóla eru allir starfsmenn skólans kvenkyns og er tilgangur með auglýsingu þessari að jafna stöðu kynjanna innan starfsgreinarinnar, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 96/2000. Umsóknir berist fyrir 30. ágúst til Önnu Gretu skólastjóra á netfangið skolastjori@reykholar.is.
Nánari upplýsingar gefur Anna Greta í síma 434 7806.