Tenglar

24. nóvember 2011 |

Reykjavíkurflugvöllur nauðsynlegur vegna sjúkraflugs

Austasti hluti flugbrautarinnar á Reykhólum þvert yfir miðja mynd. Ljósm. Árni Geirsson.
Austasti hluti flugbrautarinnar á Reykhólum þvert yfir miðja mynd. Ljósm. Árni Geirsson.

Stjórn Landssambands heilbrigðisstofnana vekur athygli á mikilvægi nálægðar Reykjavíkurflugvallar við Landspítalann vegna sjúkraflugs og bráðaþjónustu við landsbyggðina. Gæta verður þess þegar nýr Landspítali er byggður að þessi nánu tengsl verði ekki rofin. Hverfi Reykjavíkurflugvöllur veldur það mikilli afturför í bráðaþjónustu við þá landsmenn sem þurfa að komast til Landspítalans með sjúkraflugi, segir í ályktun sem stjórnin samþykkti í síðustu viku.

 

Fram kemur í greinargerð með ályktun stjórnar sambandsins, að fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu sé Reykjavíkurflugvöllur órjúfanlega tengdur Landspítalanum. Það gangi ekki að á sama tíma og byggður sé fullkominn nútímaspítali fyrir alla landsmenn verði brugðið fæti fyrir sjúkraflugið með því að leggja flugvöll þess niður og færa þá bráðaþjónustu aftur um áratugi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31