24. október 2018 | Sveinn Ragnarsson
Rjúpnaveiðibann á jörðum í Reykhólahreppi
Rjúpnaveiði er bönnuð á eftirtöldum jörðum í Reykhólahreppi;
Kinnarstöðum,
Skógum,
Gröf,
Múla í Þorskafirði,
Þórisstöðum,
Hyrningsstöðum,
Berufirði,
Skáldsstöðum,
Hafrafellslandi 3.
Gillastöðum.
Um næstu helgi eru fyrstu veiðidagar rjúpu. Á síðu Umhverfisstofnunar eru taldir þeir 12 dagar sem heimilt er að stunda veiðar.
Rjúpnaveiðar 2018
Fjöldi veiðidaga eru 12 sem skiptast á fjórar helgar, þ.e. síðustu helgina í október og fyrstu þrjár í nóvember:
- föstudaginn 26. október, laugardaginn 27. október og sunnudaginn 28. Október,
- föstudaginn 2. nóvember, laugardaginn 3. nóvember og sunnudaginn 4. nóvember,
- föstudaginn 9. nóvember, laugardaginn 10. nóvember og sunnudaginn 11. nóvember,
- föstudaginn 16. nóvember, laugardaginn 17. nóvember og sunnudaginn 18. nóvember.
Sigþór Guðjónsson, mivikudagur 24 oktber kl: 20:09
langar fyrir hönd landeigenda Hafrafells 3 að endurnýja rjúpnaveiðibann á jörðinni frá fyrra ári með kærri þökk Sigþór Guðjónsson