Tenglar

24. október 2015 |

Rjúpnaveiðibann á nokkrum jörðum í Reykhólahreppi

Rjúpnaveiði er bönnuð í landareignum nokkurra jarða í Reykhólahreppi.
Rjúpnaveiði er bönnuð í landareignum nokkurra jarða í Reykhólahreppi.

VIÐBÆTUR - Núna er fyrsta rjúpnaveiðihelgin af fjórum þetta árið en síðan er leyft að veiða rjúpu þrjá daga í senn næstu þrjár helgar. Eins og áður hafa eigendur og umráðamenn nokkurra jarða í Reykhólahreppi tilkynnt að í landareignum þeirra sé rjúpnaveiði bönnuð. Þær jarðir eru eftirtaldar að þessu sinni (bætt á listann í stafrófsröð eftir því sem tilkynningar berast):

  • Berufjörður
  • Gillastaðir
  • Gröf í Þorskafirði
  • Hafrafell 3
  • Hyrningsstaðir
  • Kinnarstaðir
  • Kleifastaðir
  • Múli í Þorskafirði
  • Skálanes
  • Skáldstaðir
  • Skógar í Þorskafirði

 

Ástþór Ágústsson í Múla í Ísafirði (innst í Djúpi) biður um að eins og á liðnum  árum verði vakin athygli á því sem hann sendi á sínum tíma til birtingar hér varðandi Kollafjarðarheiði. Það sé enn í fullu gildi. Hann biður menn að sýna tilhlýðilega kurteisi við veiðilendur og eigendur þeirra og segir:

 

Á undanförnum árum hefur borið á því að veiðimenn komi upp á Kollafjarðarheiði úr Kollafirði og séu að skjóta á heiðinni og víðar án leyfis. Meðal annars hefur orðið vart við veiðimenn í landi Múla í Ísafirði, sem er þó í allnokkurri fjarlægð frá vegslóðanum á heiðinni. Mér datt í hug hvort þú gætir haft hér með þessum lista, að veiðimenn sem ætla sér á Kollafjarðarheiði kynni sér hvar lönd jarða liggja og veiði aðeins þar sem leyfi liggur fyrir.

 

 

Athugasemdir

Þorleifur Guðjónsson, mivikudagur 25 oktber kl: 12:18

Sæl, við systkinin höfum áhuga á að Hluti af jörðinni Hafrafell 3 verði skilgreind sem frístundabyggð. Þar sem nú þegar eru komin 3 hús á svæðið og er jafnvel í bígerð að það komi fleiri sumarhús.
Bkv
Þorleifur

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31