8. október 2012 |
Rjúpnaveiðibann á ýmsum jörðum í Reykhólahreppi
Fimm viðbætur: Rjúpnaveiði og önnur skotveiði er bönnuð í landareignum Hyrningsstaða, Berufjarðar, Skáldstaða, Gillastaða, Bæjar í Króksfirði, Kinnarstaða, Skóga, Múla í Þorskafirði, Þórisstaða, Grafar í Þorskafirði og Hallsteinsness. Hér hefur áður komið fram, að rjúpnaveiði er bönnuð í landi Gautsdals. Fylgst er með því eins og kostur er hvort gegn þessu er brotið.
Ef eigendur eða umráðamenn vilja tilkynna um veiðibann á fleiri jörðum má senda tölvupóst eða hringja í síma 892 2240.