8. desember 2015 |
Rólegt á vaktinni hjá björgunarsveitinni
Björgunarsveitin Heimamenn í Reykhólahreppi stóð vaktina í fárviðri næturinnar. Ekki er vitað um neitt tjón eða vandræði í héraðinu vegna veðursins. „Það kom ekkert upp á nema að hurðin á kirkjunni opnaðist,“ segir Ágúst Már Gröndal, ritari björgunarsveitarinnar.
Ekki urðu heldur neinar rafmagnstruflanir eins og voru víða annars staðar um land allt.