30. maí 2017 | Sveinn Ragnarsson
Rotþróahreinsun 2017
Reykhólahreppur auglýsir áætlaða rotþróahreinsun í sveitarfélaginu í júní/júlí. Aðilar sem þurfa að fá hreinsun í ár, hafi samband við skrifstofu sveitarfélagsins, hvort sem er frá íbúðarhúsnæði á lögbýli eða sumarhúsi.
Reykhólahreppur sendir út reikninga fyrir kostnaði að hreinsun lokinni og fer gjald eftir stærð rotþróa og skýrslu frá hreinsunaraðila.
Gott er að merkja rotþrær á áberandi hátt fram yfir hreinsun, t.d. með veifu.
Hægt er að senda beiðni um hreinsun á netfangið skrifstofa@reykholar.is eða hringja í síma 430-3200, fyrir 5. júní 2017.