Tenglar

21. nóvember 2013 | vefstjori@reykholar.is

Rúllupylsukeppnin haldin í Sævangi

Dómendur að störfum þegar keppnin var haldin í Króksfjarðarnesi í fyrra.
Dómendur að störfum þegar keppnin var haldin í Króksfjarðarnesi í fyrra.

Sauðfjársetur á Ströndum og Slow Food samtökin á Íslandi halda Íslandsmeistaramót í rúllupylsugerð í Sauðfjársetrinu á Ströndum (Sævangi, 12 km sunnan við Hólmavík) núna á laugardaginn kl. 13. Þetta er í annað skiptið sem keppnin er haldin. Fyrir ári var hún í Króksfjarðarnesi og fékk þá Strandafólkið Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir í Húsavík verðlaun fyrir léttreykta rúllupylsu. Þau fengu líka önnur verðlaun fyrir ávaxtafyllta rúllupylsu. Sérstaka viðurkenningu fékk rúllupylsa frá Sverri Kristjánssyni og Heiðrúnu Sigurðardóttur í Reykjanesbæ.

 

Rúllupylsuuppskriftir þekkjast úr fornum og nýjum uppskriftabókum en líklegt er að margar og margvíslegar uppskriftir séu til á heimilum landsmanna hver annarri betri.

 

Keppnisreglur:

  • Þátttakendur mega koma með eins margar gerðir af rúllupylsum og þeir vilja.
  • Þátttakendur bjóða gestum að smakka á rúllupylsunum.
  • Dómnefnd valinkunnra matgæðinga og smakkara mun leggja dóm á lykt, áferð, bragð, framsetningu og frumleika.
  • Viðurkenningar verða veittar fyrir þrjú fyrstu sætin og einnig aukaverðlaun fyrir frumleika.

 

Þeim sem ekki eiga heimangengt með sínar rúllupylsur er bent á að þær má senda á Sauðfjársetrið og starfsmenn þess taka að sér að sjá um framsetningu og kynningu. Gott er að tilkynna þátttöku hjá Ester í síma 823 3324 eða í netfangið www.saudfjarsetur@strandir.is en ekki nauðsynlegt.

 

Sjá hér um keppnina í Króksfjarðarnesi í fyrra (fjöldi mynda):

► 02.12.2012 Verður nú vart aftur snúið

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31