Tenglar

20. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is

SEEDS: Íslensk ungmenni til Frakklands

Hefur þú áhuga á að ferðast, kynnast nýju fólki og upplifa öðruvísi menningu? Hvernig væri að skella sér til Frakklands og upplifa menningu Saint Julien en Beauchêne og taka þátt í skemmtilegu verkefni?

 

Þannig hefst kynning á næstu ungmennaskiptum SEEDS-samtakanna, sem fólk í Reykhólahreppi og víða um land er farið að þekkja vel. Síðan segir:

 

SEEDS mun senda 5 Íslendinga á aldrinum 18-25 ára til þátttöku í ungmennaskiptunum „Melting Potes: An Artistic Adventure About Cultural Diversity“ sem mun fara fram í bænum Saint Julien en Beauchêne í Hautes-Alpes í Frakklandi dagana 5.-26. ágúst. Einn í íslenska hópnum má þó vera á aldrinum 25-30 ára.

 

Umsóknarfrestur er fram á miðnætti annað kvöld, mánudag 22. júlí, í netfanginu outgoing@seeds.is. Þar svarar Unnur Eyfells einnig fyrirspurnum og í síma 845 0766.

 

 

Þema og markmið ungmennaskiptanna

 

SEEDS tekur nú þátt í ungmennaskiptunum Melting Potes annað árið í röð en óhætt er að segja að verkefnið hafi slegið í gegn í fyrra. Í verkefninu mætast 20 ungir einstaklingar frá hinum ýmsu Evrópulöndum og vinna saman að fjölbreyttum verkefnum sem tengjast meðal annars fjölmenningu, listsköpun og umhverfisvernd. Í verkefninu munu þátttakendur fá tækifæri til að dýpka þekkingu sína á ólíkum menningarheimum innan Evrópu með þátttöku í umræðum og vinnustofum þar sem þeim gefst meðal annars tækifæri til að skapa sín eigin verk sem endurspegla þema ungmennaskiptanna. Í vinnustofunum verður einnig fjallað um sjálfboðaliðastarfið og hvernig hægt er að vekja áhuga ungs fólks á virkri þátttöku í ungmennastarfi.

 

Þátttakendur munu einnig vinna saman að listrænu verkefni undir fyrirsögninni „Gerum það saman“ eða „Let's do it together“ sem vísar til fjölþjóðlegs yfirbragðs verkefnisins. Í ár hefur verið ákveðið að leggja áherslu á sjónræna list (e. visual arts) og endurvinnslu en þátttakendur munu vinna saman að listrænni sköpun á svokölluðu „Land Art“ verki þar sem notast verður við endurvinnanlegan efnivið.

 

Undir lok ungmennaskiptanna mun fara fram hátíð þar sem þátttakendur munu meðal annars sýna verk sín en þeir munu taka virkan þátt í skipulagningu hátíðarinnar og hátíðarhöldunum sjálfum. Áhugasamir þátttakendur með bakgrunn í tónlist, dansi, leiklist eða öðrum tegundum sköpunar munu fá tækifæri til að koma hæfileikum sínum á framfæri á hátíðinni.

 

Ungmennaskiptin munu fara fram á ensku og þátttakendur þurfa að hafa gott vald á talaðri ensku.

 

Námskeiðið er styrkt af ungmennaáætlun Evrópusambandsins og því munu þátttakendur fá allt að 70% endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar, auk þess sem þeim er séð fyrir fæði og húsnæði á meðan á verkefninu stendur.

 

Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs má finna hér:

 

www.seeds.is

www.facebook.com/seedsiceland

www.facebook.com/volunteer.workcamps.iceland

 

Sjá einnig:

SEEDS-liðarnir sungu lag Reykhóladaganna

SEEDS á Íslandi

Vantar þig áhugasama sjálfboðaliða til aðstoðar?

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31