Sæmundarhúsið á Reykhólum til sölu
Sæmundarhúsið svokallaða að Hellisbraut 14 á Reykhólum hefur verið sett á sölu á Fasteignamiðlun Vesturlands á Akranesi. Norðursalt á Reykhólum keypti húsið fyrir rúmu ári og hugðist nota það til íbúðar fyrir starfsfólk sitt. Húsið var í mjög slæmu ástandi að nánast öllu leyti og hefur fyrirtækið lagt mikla vinnu og fjármuni í endurbætur á því. Enn er þó mikið ógert innanhúss.
Myndirnar sem hér fylgja ásamt öðrum upplýsingum varðandi húsið og söluna er að finna á vef Fasteignamiðlunar Vesturlands.
Í kvöld verður hér á Reykhólavefnum rætt við Garðar Stefánsson hjá Norðursalti um ástæður þess að húsið er sett á sölu og um flutning á vörupökkuninni hjá fyrirtækinu frá Reykhólum og til Reykjavíkur.
Sjá einnig:
► 09.01.2014 Sæmundarhúsið á Reykhólum gert í stand
Dalli, mivikudagur 04 febrar kl: 21:12
Var starfsfólkinu boðin áfallahjálp?