1. mars 2010 |
Saltkjöt og bókmenntir hjá Lions
Hin árvissa saltkjötsveisla og bókmenntastund hjá Reykhóladeild Lions verður á föstudagskvöldið, 5. mars. Tilhögun verður með sama hætti og undanfarin ár. Að þessu sinni verður fjallað um skáldkonuna Höllu Eyjólfsdóttur á Laugabóli í Djúpi, en hún fæddist og ólst upp í Múla við Gilsfjörð. Jafnframt verða sungin lög Sigvalda Kaldalóns við ljóð Höllu.
Nánari upplýsingar veita Ólafur og Ingunn í Þurranesi í síma 434 1556. Fólk sem hyggst sækja samkomuna er beðið að hafa samband við þau með fyrirvara.