9. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is
SamVest-mót fyrir börn og unglinga
SamVest-íþróttamót fyrir börn og unglinga verður haldið í Borgarnesi þriðjudaginn 13. ágúst. Meðal þeirra sem standa að þessu móti er Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN), þar sem Umf. Afturelding í Reykhólahreppi er meðal aðildarfélaga. Hér er slegið saman í eitt öflugt mót ágústmóti 10 ára og yngri auk mótsins fyrir 11 ára og eldri sem vera átti í júní en var frestað vegna veðurs.
Allar upplýsingar um keppnisgreinar í hverjum aldursflokki, skráningu og annað sem mótið varðar er að finna hér.