SamVest-samæfing í Hafnarfirði
Héraðssamböndin UDN, USK, HSH, UMSB, HSS og HHF boða til samæfingar fyrir iðkendur sína, sem fram fer í nýrri frjálsíþróttahöll FH í Hafnarfirði sunnudaginn 19. október og hefst kl. 11. Æfingin er fyrir 10 ára (árgang 2004) og eldri. Áhersla verður lögð á stangarstökk, spretthlaup, kringlukast og sleggjukast.
Þjálfarar verða Einar Þór Einarsson, Ragnheiður Ólafsdóttir og Eggert Bogason.
Stefnt er að því að borða saman eftir daginn einhvers staðar nálægt, en sú máltíð er á kostnað þátttakenda.
Þeir sem ætla að taka þátt í þessu þurfa að láta vita í netfangið hronn@vesturland.is helst ekki seinna en núna um helgina.
Kæru iðkendur og foreldrar! Endilega fjölmennum – gaman saman, í frjálsum!
Með frjálsíþróttakveðju.
Framkvæmdaráð SamVest-hópsins.