19. janúar 2018 | Sveinn Ragnarsson
Sambandið
Fyrir alllöngu vissi hvert mannsbarn hvað átt var við ef „Sambandið“ var nefnt, en eftir að Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS) felldi seglin í verslun og atvinnulífi landsins hefur það sjaldnar verið nefnt.
Samband íslenskra sveitarfélaga er oft kallað sambandið líka en er mun minna í almennri umræðu, fólk tengir það kannski helst við kjaradeilur kennara og fjármál sveitarfélaga, sem mörgum finnast ekki áhugaverð, en er þó hluti af grunnatriðum okkar samfélags.
Á vef sambandsins er fjölbreytt efni, nú er t.d. auglýst eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla, umfjöllun um lækkun kosningaaldurs, skólamál og svo er teljari á síðunni þar sem sést fjöldi Íslendinga á þessari stundu, 346.750 þegar þetta er skrifað.