Tenglar

15. apríl 2009 |

Samdi Litlu fluguna á átta mínútum

Morgunblaðið 1.04.1998.
Morgunblaðið 1.04.1998.

Í minningargrein um Sigurð heitinn Elíasson á Reykhólum, sem birtist í Morgunblaðinu eftir andlát hans fyrir liðlega ellefu árum, er greint frá því að Sigfús Halldórsson tónskáld hafi samið lagið Litlu fluguna við ljóð Sigurðar á svipstundu. Þar segir að Sigfúsi hafi litist vel á kvæðið og Sigurður boðið honum að semja við það lag ef hann gæti lokið því á tíu mínútum. „Sigfús settist við píanóið og Litla flugan var fullsköpuð á átta mínútum", segir í greininni, sem skrifuð er af Alfreð Harðarsyni og fjölskyldu.

 

Velunnari Reykhólavefjarins sendi ábendingu um þetta. Greinin birtist á bls. 43 í Morgunblaðinu hinn 1. apríl 1998.

 

Mikinn fjölda af blöðum og tímaritum má lesa á vef Landsbókasafns, timarit.is.

 

Sjá einnig:

14.04.2009 Hvernig litla flugan varð til ...

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31