Tenglar

28. nóvember 2011 |

Sameiningar í stoðkerfi Vestfjarða samþykktar

Auka-fjórðungsþing Vestfirðinga sem haldið var á föstudag samþykkti tillögu um sameiningu starfsemi stofnana stoðkerfis atvinnu og byggðar á Vestfjörðum. Um er að ræða stofnanir sem sveitarfélög á Vestfjörðum koma að með beinni eignaraðild eða samstarfssamningum og greiða árleg framlög til. Sameiningin tekur til Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Markaðsstofu Vestfjarða og Menningarráðs Vestfjarða ásamt Fjórðungssambandi Vestfirðinga, að því gefnu að aðalfundir þessara stofnana samþykki sameininguna.

 

Markmiðið með sameiningunni er að efla starfsemina og samvinnu þeirra öflugu starfsmanna sem nú starfa hjá ólíkum stofnunum, segir í tilkynningu frá Fjórðungssambandinu. Þannig verður til öflugri stofnun sem betur getur sinnt núverandi verkefnum auk þess að vera betur í stakk búin að taka að sér stærri verkefni. Sú þjónusta sem veitt hefur verið einstaklingum og fyrirtækjum verður áfram í boði en markmiðið er að bæta og efla þá þjónustu.

 

Lögð hefur verið mikil áhersla á að viðhalda mannauði þessara stofnana við sameiningu og ekki síður að nýta þekkingu starfsmanna í því breytingaferli sem nú er hafið. Stefnt er að óbreyttu starfsmannhaldi sem einnig tryggir þjónustu við viðskiptamenn og aðra starfsemi stoðkerfisins í framtíðinni.

 

Starfshópur hefur unnið að undirbúningi málsins frá Fjórðungsþingi í byrjun september og skilaði tillögum inn á aukaþingið. Í þeirri tillögu sem samþykkt var á þinginu er gert ráð fyrir innleiðingarferli en fyrsta skref þess er sameining Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða við Fjórðungssamband Vestfirðinga núna um áramótin. Jafnframt verður aukið samstarf við Markaðsstofu Vestfjarða og Menningarráð Vestfjarða, sem síðan sameinast hinni nýju stofnun í síðasta lagi eftir liðlega ár eða í janúar 2013.

 

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga leggur áherslu á mikilvægi þess að breytingar á stoðkerfi hafi jákvæð áhrif á núverandi stuðning og samstarf við einstaklinga, fyrirtæki og samtök fyrirtækja á Vestfjörðum, svo sem í ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Stjórnin horfir til að breytingar þessar verði til að efla þessa þætti enda eru þeir grundvöllur fyrir árangur við þróun atvinnu og byggða á Vestfjörðum, segir í tilkynningunni.

 

24.11.2011  Stoðeiningar Vestfjarða sameinaðar í eina stofnun?

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31