5. mars 2018 | Sveinn Ragnarsson
Samfélagsstyrkir OV
Fyrir helgina voru afhentir samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða, og komu alls kr. 250.000.- til verkefna í Reykhólahreppi. Ungmennafélagið fékk kr. 100.000.- í barna og unglingastarf, Nemendafélag Reykhólaskóla fékk sömuleiðis 100.000.- og Albert Páll Sigurðsson fékk 50.000.- kr. stuðning til að gera upp Ólafarbrunn í Flatey.