Tenglar

31. ágúst 2008 |

Samhljómur VG og formanns Sambands ísl. sveitarfélaga

Samhljómur með Halldóri og VG.
Samhljómur með Halldóri og VG.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, kveðst óttast niðurskurð á almennri grunnþjónustu vegna aukinnar skuldsetningar sveitarfélaga. Hann tekur undir með Vinstri grænum að nauðsynlegt sé að styrkja framlag ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Á flokksráðsfundi VG sem lauk í gær voru samþykktar fimm ályktanir sem allar snerta málefni sveitarfélaga. Flokkurinn telur nauðsynlegt að auka framlag ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um 10 milljarða á næstu tveimur árum. Halldór tekur undir nauðsyn þess að styrkja sjóðinn.

 

Í ályktun Vinstri grænna er hugmyndum um lögbindingu lágmarksstærðar sveitarfélaga hafnað. Halldór segir mikilvægt að styrkja sveitarfélögin með frjálsum sameiningum.

 

Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.


Í þessu sambandi má geta þess, að Halldór Halldórsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ.
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31