Tenglar

24. júní 2009 |

Samkeppni: Merki fyrir Sjávarútvegsklasa Vestfjarða

Sjávarútvegsklasi Vestfjarða er samstarfsvettvangur sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörðum þar sem unnið er að sameiginlegum hagsmunamálum, svo sem markaðsmálum, þróunarstarfi, nýsköpun, menntun, innkaupum o.s.frv. Klasinn efnir nú til samkeppni um hönnun á merki fyrir Sjávarútvegsklasa Vestfjarða. Merkið verður notað í kynningar- og almannatengslastarfi í kringum störf sjávarútvegsklasans. Merkið þarf að vera hannað með það fyrir augum að það geti nýst á alþjóðlegum vettvangi og með sérstaka áherslu á helstu útflutningssvæði fyrir vestfirskar sjávarafurðir. Það þarf líka að vera hannað með það fyrir augum að hægt sé að nota það jöfnum höndum í innlendu markaðs- og kynningarstarfi. Þar af leiðandi mætti horfa á merkið sem hefðbundið fyrirtækjamerki varðandi notkun, þannig að það gæti verið á umbúðum, birst í auglýsingum og verið sett á bréfsefni, á vefsíður og annað kynningarefni.

 

Merkið skal hafa tilvísun í þá sérstöðu og þá ímynd sem vestfirskar sjávarafurðir standa fyrir og ber þar helst að nefna:

  • Hágæðaafurðir
  • Umhverfisvænleika
  • Hreinleika
  • Langa hefð í sjávarútvegi

 Þetta eiga ekki að vera takmarkandi þættir og vonast er eftir fjölbreyttum hugmyndum.

 

Merkið má vera að hámarki í þrílit og skila þarf merkinu inn rafrænt á pdf-formi.

 

Ákjósanlegast yrði merkið unnið í Illustrator eða sambærilegum teikniforritum.

 

Hugmyndum þarf að skila inn fyrir 15. ágúst og sendast á Neil Shiran Þórisson á shiran@atvest.is þar sem þurfa að koma fram tengiliðaupplýsingar um hönnuð merkisins.

 

Keppnin er opin öllum.

 

Veitt verða verðlaun fyrir besta merkið. Verðlaunaféð er 100.000 krónur og verður merkið keypt af viðkomandi keppenda.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31