Tenglar

2. ágúst 2011 |

Samkeppni um merki (lógó) félagsþjónustunnar

Merki sveitarfélaganna fjögurra sem að félagsþjónustunni standa.
Merki sveitarfélaganna fjögurra sem að félagsþjónustunni standa.

Óskað er eftir tillögum að kennimerki (lógói) félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps. Merkið þarf að vera tilbúið til notkunar á tölvutæku formi. Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er sameiginleg félagsþjónusta Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Strandabyggðar og Reykhólahrepps. Hún sinnir þjónustu á sviði barnaverndar, félagslegrar ráðgjafar, fjárhagsaðstoðar, málefna fatlaðs fólks, félagslegrar heimaþjónustu og málefna aldraðra.

 

Einkennisorð félagsþjónustunnar eru mannvirðing, fordómaleysi og trúnaður.

 

Tillögurnar óskast sendar á skrifstofu Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík, ekki seinna en 18. september, merktar „lógó“.

 

Félagsmálastjóri tekur við tillögunum. Nánari upplýsingar veitir Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri í síma 842-2511 eða í gegnum netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is.

 

Verðlaun eru heiðurinn af höfundarverki kennimerkisins auk 50.000 króna.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31