Tenglar

18. febrúar 2010 |

Samningur um gagnkvæma aðstoð slökkviliða

1 af 2
Samningur milli allra slökkviliða á Vesturlandi var undirritaður á Vatnasafninu í Stykkishólmi í gær. Þetta eru slökkvilið Stykkishólms og nágrennis, Slökkvilið Grundarfjarðar, Slökkvilið Snæfellsbæjar, Slökkvilið Dalabyggðar, Slökkvilið Reykhólahrepps, Slökkvilið Borgarbyggðar og Slökkvilið Akraneskaupstaðar. Markmiðið er að nýta þau tæki og þann mannafla sem slökkviliðin á Vesturlandi hafa yfir að ráða með gagnkvæmri aðstoð við slökkvistörf ef um meiri háttar eldsvoða eða dreifibruna er að ræða. Af hálfu Reykhólahrepps sátu fundinn þeir Óskar Steingrímsson og Egill Sigurgeirsson.

 

Með tilkomu samningsins hefur slökkvistjóri þar sem bruni verður heimild til að óska eftir aðstoð annarra slökkviliða á Vesturlandi, telji hann þörf á liðsauka. Slökkvistjórinn sem leitað er til sendir þá tæki og mannafla þegar í stað eftir að metið hefur verið hvaða tæki og mannafla árangursríkast er að senda og slökkvilið hans er aflögufært um. Öll aðstoð sem látin er í té samkvæmt samningnum er án endurgjalds.

 

Með samningnum eru slökkvistjórar og slökkviliðsmenn á Vesturlandi hvattir til að kynna sér starfsemi og aðstæður hvers annars, m.a. með tilliti til öryggisreglna og eldvarna. Samningsaðilar hvetja jafnframt til að haldnar séu sameiginlegar æfingar eftir því sem æskilegt getur talist.

 

Með samningnum er slökkvistarf á Vesturlandi eflt til muna þar sem hægt er að kalla til aðstoð við slökkvistörf frá öllum sveitarfélögunum á Vesturlandi. Slökkviliðin geta einnig hagrætt með samnýtingu þeirra tækja og búnaðar sem slökkvilið á Vesturlandi hafa yfir að ráða.

 

Athygli vekur að sjálfur ösku-dagurinn skuli hafa verið valinn til undirritunar samningsins ...

 
Slökkvilið Reykhólahrepps
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31