18. nóvember 2019 | Sveinn Ragnarsson
Samtök atvinnurekenda - stofnfundur
Stofnfundur nýrra samtaka atvinnurekenda á Ströndum og Reykhólum verður í Hnyðju, Þróunarsetrinu á Hólmavík, 19. nóv. kl. 18:00.
Vonast er til þess að allir sem eru með einhverskonar atvinnustarfsemi, hvort sem hún er í stórum eða smáum stíl, sjái sér fært að mæta.
Samtökunum er ætlað að vera samstarfsvettvangur fyrirtækjanna og málsvari gagnvart sveitarfélögum og stjórnvöldum.