Tenglar

21. október 2014 | vefstjori@reykholar.is

Samtök atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum

Einar Sveinn Ólafsson, formaður og talsmaður hinna nýju samtaka.
Einar Sveinn Ólafsson, formaður og talsmaður hinna nýju samtaka.
1 af 2

Einar Sveinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal, er formaður nýstofnaðra Samtaka atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum (SASV). Hópur fulltrúa helstu atvinnugreina á sunnanverðum Vestfjörðum kom saman á Tálknafirði í byrjun þessa mánaðar, þar sem stofnað var til heildarsamtaka atvinnurekenda í Vestur- og Austur-Barðastrandarsýslum eða allt frá Bíldudal til Reykhóla. Á fundinn mættu m.a. fulltrúar frá ferðaþjónustu, iðnfyrirtækjum, verslun og þjónustu, fiskeldi, fiskvinnslu og útgerð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Þar segir ennfremur:

 

Samtök atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum (SASV) hafa að meginmarkmiði að stuðla að vexti og viðgangi samfélaganna í Barðastrandarsýslum með það fyrir augum að gera byggðirnar enn ákjósanlegri til atvinnurekstrar og búsetu, ekki síst fyrir fjölskyldufólk. Hyggjast samtökin vinna að þeim markmiðum með því m.a. að stuðla að aukinni samkeppnishæfni atvinnufyrirtækjanna og stuðla eða standa að verkefnum sem eflt geta nýsköpun og samvinnu fyrirtækja sem horft geta til heilla fyrir samfélögin í heild.

 

Í nýkjörinni aðalstjórn SASV eru Einar Sveinn Ólafsson, frkvstj. Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal, formaður og talsmaður, Björgvin Sigurjónsson, frkvstj. Trésmiðjunnar Eikar á Tálknafirði, Einar Kristinn Jónsson, frkvstj. ferðaskrifstofunnar Westfjords Adventures á Patreksfirði, Höskuldur Steinarsson, framleiðslustjóri Fjarðalax á Bíldudal, Haukur Már Sigurðarson, kaupmaður í Fjölvali á Patreksfirði, Sigríður I. Birgisdóttir, útibússtjóri Landsbankans á Patreksfirði, og Sigurður Viggósson, frkvstj. Odda á Patreksfirði.

 

Í varastjórn voru kjörin Barði Sæmundsson, frkvstj. Vélsmiðjunnar Loga á Patreksfirði, Bergrún Halldórsdóttir, gjaldkeri hjá Sýslumannsembættinu á Patreksfirði, Bjarni Einarsson, veitingamaður í Hópinu á Tálknafirði, og Magnús Guðjónsson,  skipstjóri á Tálknafirði.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31