Tenglar

10. nóvember 2015 |

Samtök sveitarfélaga skora á ráðherra og þingmenn

Landshlutasamtök á öllu landinu, þar á meðal Fjórðungssamband Vestfirðinga, skora á ráðherra og alþingismenn að tryggja að við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 verði aukin framlög til eftirtalinna málaflokka, sem allir eru gríðarlega mikilvægir fyrir byggðaþróun til framtíðar:

  • Þjónusta við fatlað fólk
  • Samningar um sóknaráætlun
  • Samgöngumál (nýframkvæmdir, viðhald og þjónusta)
  • Almenningssamgöngur
  • Ljósleiðaravæðing

Landshlutasamtökin eru sem fyrr reiðubúin til að leggjast á árar með sínum kjörnu fulltrúum og ríkisvaldinu við að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Það verður þó ekki gert nema vilji til þess sjáist í fjárlagafrumvarpinu gagnvart þessum lykilmálum.

 

Sjá nánar hér (ítarefni og skýringar með ofanritaðri áskorun)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31