11. mars 2011 |
Sauðburður á góu í Trékyllisvík
Ærin Blaðka í Bæ í Trékyllisvík á Ströndum, sem er sjö vetra, bar hrútlambi gær. Hún hefur komist í hrút - eða hrútur í hana - um eða fyrir 20. október, en þá voru hrútarnir teknir inn, að sögn Gunnars Dalkvist Guðjónssonar bónda í Bæ. Heimasæturnar í Bæ, þær Aníta Mjöll og Magnea Fönn Gunnarsdætur, eru hæstánægðar með þennan viðburð. Frá þessu er greint á fréttavefnum Litlahjalla, sem Jón G. Guðjónsson veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík heldur úti með miklum sóma.
Gunnar Dalkvist er frá Mýrartungu í Reykhólasveit, sonur Dalla sem lengi hefur verið búsettur á Reykhólum ...
Myndina tók Pálína Hjaltadóttir í Bæ.