8. september 2014 | vefstjori@reykholar.is
Sauðfé og akandi vegfarendur í hættu
Vegfarendum um þjóðvegi landsins stafar hætta af fé á vegum og sauðfénu stafar enn meiri hætta af umferð vélknúinna ökutækja. Þetta er sérlega varasamt á þessum tíma árs þegar farið er að skyggja nokkuð snemma kvölds, jafnframt því sem fé er tekið að færa sig niður á láglendi. Í rigningu eins og verið hefur meira og minna á Vestfjörðum þessa dagana er skyggni lítið og viðbragðstíminn nær enginn þegar féð birtist í ökuljósum.
Lögreglan á Vestfjörðum segir að þetta sé sá árstími sem mesta hættan er í þessu efni. Hún brýnir fyrir vegfarendum að sýna sérstaka aðgát á næstunni fram að smölun en þá ætti ástandið að batna.