Tenglar

29. október 2014 | vefstjori@reykholar.is

Sauðfjárbændur hvattir til þátttöku

Ljósm. Sauðfjársetur á Ströndum.
Ljósm. Sauðfjársetur á Ströndum.

Allir sauðfjárbændur á svæðinu frá Reykjanesskaga til Vestfjarða eiga að hafa fengið bréf snemma í október þar sem þeim er boðið að taka þátt í námskeiðinu Sauðfjárskólanum sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins á Hvanneyri gengst fyrir. Skráningar standa yfir og hefur skráningarfrestur verið framlengdur til mánudagsins 3. nóvember.

 

Í Sauðfjárskólanum eru haldnir sjö fræðslufundir sem dreifast á u.þ.b. eitt ár. Fundirnir verða haldnir á virkum dögum og standa kl. 13-17 hverju sinni. Fjöldi fundastaða á svæðinu fer eftir þátttökunni en vonast er til að hægt verði að halda Sauðfjárskólann á a.m.k. fjórum stöðum á þessu svæði næsta árið. Til þess að ná því markmiði vantar fleiri skráningar og sauðfjárbændur því hvattir til að skrá sig sem fyrst, veki þessi fræðslukostur áhuga.

 

Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is eða hringja í 516-5000. Eins má fá nánari upplýsingar hjá Árna B. Bragasyni í gegnum netfangið ab@rml.is eða í síma 515-5008.

 

Sjá nánar:

Bréf sem sent var sauðfjárbændum varðandi námskeiðið

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31