18. nóvember 2009 |
Segir ekki hafa verið rætt við neina hagsmunaaðila
Æðarræktarfélag Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að hætta þátttöku ríkisins í refaveiðum. Þetta kemur fram í tilkynningu undirritaðri af formanni félagsins, Jónasi Helgasyni í Æðey á Ísafjarðardjúpi. Þar er því haldið fram, að raunverulegur sparnaður af þessari ákvörðun sé langtum minni en haldið hafi verið fram. Einnig segir þar:
„Allt frá 13. öld hafa verið inni ákvæði um fækkun refa. Það hafa ekki verið færð rök fyrir því af hverju það sé í lagi að hætta því akkúrat núna. Fróðlegt væri að heyra hverjir voru ráðgjafar ráðherra í þessu máli, allavega var ekki rætt við neina hagsmunaaðila svo mér sé kunnugt um.“
Sjá einnig:
Sveitarstjórn Reykhólahrepps mótmælir ákvörðun varðandi refaveiðar