6. september 2013 | vefstjori@reykholar.is
Segja nauðsyn á Íbúðalánasjóði eða ígildi hans
„Aðalfundur samtakanna Landsbyggðin lifi leggur áherslu á að Íbúðalánasjóður eða ígildi hans þurfi að vera til staðar fyrir þá landsmenn sem ekki hafa aðgang að fjármagni til húsnæðiskaupa í gegnum bankana. Sá hópur samanstendur af fólki sem vegna búsetu eða félagslegrar stöðu uppfyllir ekki skilyrði bankanna. Bankar eru reknir í hagnaðarskyni en það á að vera hlutverk Íbúðalánasjóðs að veita þjónustu í almannaþágu.“
Þannig hljóðar samþykkt sem gerð var á aðalfundi samtakanna Landsbyggðin lifi, sem haldinn var á Egilsstöðum um síðustu helgi, og send var vefnum til birtingar.
► Vefur samtakanna Landsbyggðin lifi