Tenglar

14. júní 2010 |

Seiðmagnaður heimur í Flatey á Breiðafirði

Úr Flatey á Breiðafirði. Mynd GG.
Úr Flatey á Breiðafirði. Mynd GG.
1 af 2
Hef verið á flakki síðustu viku, þar á meðal fórum við út í Flatey og vorum þar nokkra daga. Flatey hefur ákveðna sérstöðu í hugum margra. Flokkast undir rómantík, seiðmagnað andrúmsloft sem hefur komið fram í myndum og bókum. Í sjálfu sér er það fábreytnin sem verður til þess að maður nýtur þess sem eyjan hefur upp á að bjóða. Hvíldin felst í því að það er góður tími til þess að skríða jafnvel upp í aftur og lesa aðeins meira og fara svo aftur í stuttan göngutúr.

 

Þannig hefst bloggfærsla Guðmundar Gunnarssonar, formanns Rafiðnaðarsambandsins, á Eyjunni í dag. E.t.v. er rétt að minna á, að Flatey er í Reykhólahreppi eins og mestur hluti Breiðafjarðareyja. Guðmundur heldur áfram:

 

Rólegur göngutúr um eyjuna er góð afslöppun. Fuglalífið er fjölbreytt og fuglarnir eru óvenjulega spakir. Krían situr róleg á næsta girðingarstaur í nokkurra metra fjarlægð, en grípur til sinna aðgerða fari maður inn fyrir þar sem er hennar umráðasvæði. Á þessum árstíma er varptími og fuglinn að koma ungum upp. Fjölmargir fuglaskoðunarmenn víðsvegar úr heiminum eru í eyjunni.

 

Húsin í þorpinu hafa flest verið endurbyggð í sína upprunalegu mynd með myndarlegum hætti. Ég hitti Guðmund Pál Ólafsson rithöfund, skólastjóra, kennara, náttúru- og heimildaljósmyndara, kvikmyndagerðarmann, smið, kafara, náttúruverndara og fyrirlesara. Hann hefur endurbyggt gamla kaupfélagshúsið með ótrúlegum hagleik þar sem hann býr nú hluta ársins. Þar stendur enn gamla verzlunin með sínum flóknu og vönduðu innréttingum.

 

Breyting hefur orðið á ferðamenningu með tilkomu hótelsins. Þar er búið að endurbyggja þrjú hús á listilegan hátt. Fágað og vandað handbragð iðnaðarmanna blasir við hvar sem litið er. Ingibjörg Á. Pétursdóttir hótelstýra hefur stutt við það andrúmsloft sem er í húsunum með góðu vali á húsgögnum og munum.

 

En Ingibjörg er meistari meistaranna í eldhúsinu og þeir réttir sem hún laðar fram eru hreint út sagt óviðjafnanlegir. Matseðilinn er sóttur í Breiðafjörðinn. Fiskisúpan er sú besta sem ég hef smakkað, er þó vel inni í þeim málum sakir dálætis á súpum og hef prófað þær víða auk þess að glíma við þær í eldhúsinu heima. Bláskelin, þorskurinn hennar, fiskibollurnar, léttreykti svartfuglinn, sjávarréttaþrennan, og þannig mætti halda áfram. Allt þetta dregur mann inn í unaðsheima eldhúss sem er í heimsklassa.

 

Enda það orðið eftirsótt að gista á hótelinu og það oftast fullbókað. En það er ekki bara sumarið sem er góður tími í Flatey. Haustið með sínum stillum og myrkum kvöldum eru seiðmögnun í Flatey. Skyndilega er allur fuglinn farinn yfir hafið til vetursetu í öðrum löndum og þögnin er mikil. Engir bílar, engar hraðbrautir. Enginn Moggi, ekkert Fréttablað, maður nennir ekki einu sinni að kveikja á útvarpinu, setur frekar góða plötu á.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31