Tenglar

29. nóvember 2012 |

Seiður í margvíslegu ljósi

Ein mynda Jóns Jónssonar af Seiði við höfnina á Hólmavík.
Ein mynda Jóns Jónssonar af Seiði við höfnina á Hólmavík.

Listaverkið Seiður eftir Einar Hákonarson sem sett var upp við Hólmavíkurhöfn í sumar hefur sett svip á bæinn og hefur mikið aðdráttarafl. Verkið er síbreytilegt að vetrarlagi því vatnið sem streymir um það verður að margvíslegum klakamyndunum sem breytast í takt við hitastigið. Eins er bakgrunnurinn ólíkur frá degi til dags og margir fallegar dagar hafa komið í haust þar sem himinn og haf litast af geislum sólarinnar og mynda fallegan bakgrunn.

 

Þannig segir á Strandavefnum. Þar eru margar mjög ólíkar ljósmyndar af listaverkinu, sem Jón Jónsson á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð hefur tekið við ýmsar aðstæður og frá ýmsum sjónarhornum.

 

Myndaröðina af listaverki Einars Hákonarsonar við Hólmavíkurhöfn má skoða hér.

 

Strandavefurinn - strandir.is

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31