Tenglar

13. nóvember 2015 |

Selaveisla með sérstæðum matseðli

Mynd: Wikipedia.
Mynd: Wikipedia.

Hin árlega Selaveisla Samtaka selabænda verður haldin annað kvöld, laugardag, í Haukahúsinu í Hafnarfirði. Þar verður á boðstólum úrval af íslenskri villibráð og ekta sveitaballastemning. Skemmtidagskrá er stútfull og sungið verður undir borðhaldi. Að borðhaldi loknu verður dansað til klukkan tvö.

 

Á veglegu villibráðarhlaðborði Selaveislunnar er að finna marga rétti sem ekki er algengt að sjá á hlaðborðum þótt leitað sé með logandi ljósi um allan heim, segja þeir sem að veislunni standa. Þar verður á boðstólum:

  • Grafin heiðagæs
  • Reyktur makríll
  • Villijurtargrafinn lax
  • Birkikrydduð karrýsíld
  • Hreindýrakæfa
  • Reyktur lundi
  • Engifermaríneraður hvalur
  • Reyktur selur
  • Hvalrengi
  • Grilluð selapiparsteik
  • Pipraðar hvalasteikur
  • Glóðarsteikt fjallalamb með Madeirasósu
  • Siginn fiskur, Vestfirðingur og selspik
  • Léttsaltað uxabrjóst með hvítkálsjafningi

Miðasöluna annast Hallbjörn Bergmann í síma 848 6161.

 

Aðalfundur Samtaka selabænda var haldinn um síðustu helgi. Formaður er sem áður Pétur Guðmundsson frá Ófeigsfirði á Ströndum. Aðrir í stjórn eru Ásgeir Gunnar Jónsson og Kristinn Nikulásson og varamaður Guðmundur Jóhannesson.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31