Tenglar

8. ágúst 2017 | Sveinn Ragnarsson

Setning grunnskóladeildar Reykhólaskóla

1 af 2

 Skólasetning grunnskóladeildar verður þriðjudaginn 22. ágúst kl. 08:30 í matsal Reykhólaskóla.  Allir velkomnir. Að lokinni skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum í sínar stofur, þar sem þau fá afhenda stundarskrá og farið verður yfir dagskrá vetrarins.

 

Við viljum minna foreldra á að námskynning Reykhólaskóla verður miðvikudaginn 6. september 17:00.

 

 

Mötuneyti Reykhólaskóla verður að sjálfsögðu starfrækt.  Nemendur fá morgunverð í skólanum kl. 09:50 þar er í boði hafragrautur, súrmjólk og ávextir.

Í hádeginu er afgreiddur heimilismatur og nemendur fá ávexti á eftir.

 

Verð fyrir skólamáltíð

Nemendur í  1. – 4. bekk                               7.961 kr. pr. mán*.

Nemendur í 5. – 7. bekk                              10.804 kr. pr. mán*.

Nemendur í 8. – 10. bekk                            12.966 kr. pr. mán*.

 

*þessi verð eru miðuð við að nemendur sé í mat alla daga.

Foreldrar geta valið ákveðna daga í vikunni en það verður að láta vita af því fyrirfram. Vinsamlegast hafið samband við Valgeir Jens (skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7806) ef þið viljið að börnin ykkar séu ekki alla daga vikunnar eða ekki í mat. 

 

Síðstliðið vor var átakið göngum í skólann, þar sem nemendur og starfsmenn komu fótgangandi í skólann. Búið er að ákveða að halda þessu átaki áfram og hafa yfirskriftina „göngum eða hjólum í skólann“ eitthvað fram í október (fer eftir veðri og vindum). Nemendur í grunnskóla sem koma með skólabílnum verður hleypt út hjá Reykhólakirkju. Við hvetjum foreldra til þess að láta börnin ganga/hjóla í skólann.

 Kennarar og starfsfólk Reykhólaskóla hlakkar til samstarfs og samveru á komandi skólaári.

 

Kveðja Valgeir Jens Guðmundsson, skólastjóri

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31