Tenglar

27. ágúst 2009 |

Sex lið í spurningakeppninni á Reykhólum

Spurningakeppnin sem verður eins konar upphitun fyrir Reykhóladaginn á laugardag verður annað kvöld, föstudagskvöld, í íþróttahúsinu á Reykhólum og hefst kl. 20. Sex þriggja manna lið taka þátt í keppninni, en þau eru: Kennarar Reykhólaskóla, starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar, Hólakaup, Kambur, Glæsibæjargengið og makar Reykhólanefndar. Byrjað verður á forkeppni en sigurliðin þrjú úr henni og stigahæsta tapliðið halda áfram í undanúrslit. Sigurliðin þar keppa síðan til úrslita.

 

Viðfangsefnin verða af ýmsu tagi, spurningar, leikin orð, bjölluspurningar og vísbendingaspurningar. Skemmtiatriði verða í hléi.


Miðaverð er kr. 500. Hægt er að kaupa kaffi og sjoppa nemendafélagsins verður á staðnum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31