Tenglar

19. febrúar 2016 |

Síðasta mottukeppni Krabbameinsfélagsins

Mottumars er að bresta á. „Nú dregur þó til tíðinda, því mottukeppnin sjálf er nú haldin í sjöunda og síðasta sinn. Ekki missa af tækifærinu til að rækta karlmennskuna og láta mottuna blómstra,“ segir í frétt frá Krabbameinsfélagi Íslands.

 

„Leggið rakvélunum og dragið fram skeggsnyrtinn. Við opnum fyrir skráningar 27. febrúar á mottumars.is. Málstaðurinn er góður og vinningarnir flottir og eigulegir að vanda. Byrjaðu að safna. Það er ekkert mál.“

 

Á myndinni er „golfpungur“ með tveimur kúlum. Nánar hér um punginn og sitthvað fleira.

 

Krabbameinsfélag Breiðfirðinga er meðal aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31