18. desember 2014 |
Síðasti dagur á bókasafninu fyrir áramót
Héraðsbókasafn Reykhólahrepps í Reykhólaskóla verður lokað yfir jólin og áramótin. Síðasti afgreiðslutími fyrir jól verður kl. 13-15 á morgun, föstudaginn 19. desember. Ef einhvern vantar bók að lesa eftir þann tíma er velkomið að hafa samband við bókavörð í síma 894 1011. Síðan verður opnað á ný með venjulegum hætti föstudaginn 2. janúar.
Á nýja árinu verður opið:
- Miðvikudaga kl. 13-15
- Föstudaga kl. 9-11
Ekkert mál að hringja ef fólk kemst ekki á þessum tímum, segir Harpa Eiríksdóttir bókavörður.